Fyrirtækjaboðhlaup BYKO
14:00-17:00 Keppnissvæði opið fyrir umferð
Keppnissvæði er opið fyrir ökutækjum til að ferja nauðsynlegan varning í tjöld. Vinsamlegast virðið að akstur á grasi og hlaupaleiðum er stranglega bannaður. Sýnið tillitssemi við gangandi vegfarendur á svæðinu.
16:30-20:00 Upplýsingamiðstöð opin
Á upplýsingaborði er hægt að fá upplýsingar um helstu atriði, eins og hlaupanúmer, boðhlaupskefli og fleira sem viðkemur hlaupinu.
17:00 Keppnissvæði lokað fyrir bílaumferð
Allir bílar, með eða án varnings, verða að vera komnir af svæðinu kl. 17:00.
17:30-17:55
Kynnir býður þátttakendur velkomna og fer yfir helstu atriði á meðan þátttakendur tínast inn á svæðið.
17:55 Opnunarræða
Opnunarræða og ræsing þátttakenda.
18:00 Fyrirtækjahlaup BYKO ræst út
18:30 Fyrirtækjaganga BYKO ræst út
Gönguhóparnir eru ræstir út með nokkurra mínútna millibili.
19:00-19:15 Fyrstu gönguhópar koma í mark
Um þetta leyti eru fyrstu gönguhópar að koma í mark. Tónlist og skemmtiatriði eru á gönguleiðinni og við endamarkið. Seinustu gönguhópar eru áætlaðir í mark milli 19:45 og 20:00.
19:00-20:00 Fyrstu boðhlaupssveitir koma í mark
Um þetta leyti eru fyrstu boðhlaupssveitir að koma í mark. Tónlist og skemmtiatriði eru á gönguleiðinni og við endamarkið. Seinustu boðhlaupssveitir eru áætlaðar í mark milli 20:30-21:00.
22:00 Takk fyrir þátttökuna
Sjáumst aftur 2021
22:15 Keppnissvæði opnar aftur fyrir umferð
Keppnissvæði opnar aftur fyrir umferð og frágangur hefst. Vinsamlegast sýnið tillitssemi við gangandi vegfarendur á svæðinu. Það er stranglega bannað að aka á grasinu og á hlaupaleiðum – virðið þær takmarkanir sem eru á svæðinu.